Opið hús: Gullsmári 1, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 03 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 31. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Einstaklega glæsileg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja 80,1 m2. íbúð á 3. hæð. Eignin var nánast öll endurnýjuð á glæsilegan hátt 2022. Ný eldhúsinnrétting, baðherbergi endurnýjað, nýtt parket og innihurðar. Eldhúsið er með glæsilegri innréttingu, innbyggðum tækjum, ísskáp, frysti og uppþvottavél. 2 rúmgóð svefnherbergi og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherbergi. Stórar suðursvalir. Frábær staðsetning.
Eignin er samtals skráð 75,2 m2 en sérgeymsla
eignarinnar er ekki skrá inn í heildar fermetrafjölda
eignarinnar um 4,9 m2.
Allar nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 / [email protected]
Sveinn Eyland lögg. fast. s. 6 900 820 / [email protected]
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Miðrými: Parket á gólfi.
Stofa / Borðstofa: Rúmgóð og björt með parket á gólfi, útgengt á suðursvalir. Mjög fallegur frágangur í kringum sjónvarp.
Eldhús: Glæsileg innrétting, borðplata úr stuc deco. Vönduð innbyggð tæki, uppþvottavél, ísskápur og frystir. Blástursofn og spanhelluborð frá AEG. Virkilega falleg glasagrind frá Former.
Svefnherbergi: 2 rúmgóð herbergi með parket á gólfi, fataskápar í báðum.
Baðherbergi: Stuc Deco á gólfi og veggjum. Sturta aðskilin með öryggisgleri, innbyggð blöndunartæki. Falleg innrétting í kringum handlaug. Stór spegill yfir handlaug. Góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat