Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1983
svg
69,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Vernharð Þorleifsson lgf. kynnir einstaklega notalegt og vel við haldið 69,7 fm sumarhús á 5.003 fm eignarlóð í landi Drumboddsstaða í Bláskógabyggð.
Um er að ræða sannkallaðan sælureit þar sem náttúran fær að njóta sín, næði er mikið og umhverfið einstaklega fallegt.
Svæðið er lokað með öryggishliði og býður upp á friðsæla aðkomu í hjarta íslenskrar náttúru.
Lóðin er afar gróin og skjólsæl með fallegu útsýni til Geysis, Langjökuls og Jarlhetta.
Trjágróður, bláberjalyng, hraun og mosi setja svip sinn á svæðið og skapa einstaka stemningu allt árið um kring.

Frekari upplýsingar veitir Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / [email protected]
Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram


Nánari lýsing:
Húsið er timburhús klætt að utan með liggjandi timburklæðningu, með trégluggum og hurðum og járnklæddu þaki.
Veglegur pallur umlykur húsið að mestu leyti og undir honum er gott geymslupláss.
Innandyra tekur á móti gestum forstofa með hengi fyrir yfirhafnir.
Á vinstri hönd er baðherbergi með sturtu, salerni og vaskinnréttingu. Nýlega hefur verið skipt um hitakút og gert er ráð fyrir þvottavél á baðherberginu. Gluggi með opnanlegu fagi tryggir góða birtu og loftræstingu.
Björt stofa og eldhús mynda hjarta hússins. Eldhúsið er með hvítri innréttingu í hlýlegum sveitastíl og í stofunni er kamína sem setur ómissandi sumarhúsabrag á rýmið.
Furuklæddir veggir og loft ásamt fallegum dökkum viðarbitum skapa hlýlegt og notalegt andrúmsloft.
Síðar var byggt við húsið og í viðbyggingunni eru tvö svefnherbergi, geymsla og millirými með útgengi út á pall. Svefnherbergin eru alls þrjú talsins.
Á gólfum er fljótandi eikarparket nema á baðherbergi og er húsið allt panelklætt að innan.
Bústaðurinn hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina, var nýlega málaður og ber þess greinilega merki að vel hefur verið hugsað um eignina.
Húsgögn og húsbúnaður geta fylgt með við sölu samkvæmt nánara samkomulagi.

Fallegt og vel hannað útisvæði
Pallurinn er stór og nær um flestar hliðar hússins. Þar er heitur pottur, geymsluskápur fyrir grill og lýsing í þakskeggi sem skapar notalega stemningu þegar skyggja tekur.
Við húsið er einnig góður geymsluskúr og mikið geymslupláss undir pallinum. Á bakhlið hússins eru rammgerðir skápar sem hafa nýst vel sem ævintýra- og leiksvæði fyrir yngri kynslóðina.
Lóðin býður upp á fjölbreytta möguleika til útiveru með bekkjum, eldstæði og góðu rými fyrir trampólín eða aðra afþreyingu. Húsið situr í fallegri rjóðri þar sem skjól og útsýni fara einstaklega vel saman.
Frábær staðsetning
Bringur 13 er á eftirsóknarverðu sumarhúsasvæði í Bláskógabyggð þar sem stutt er í fjölbreytta afþreyingu.
Sundlaugar, baðlón, golfvellir, gönguleiðir og margar af helstu náttúruperlum Suðurlands eru í nágrenninu.

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. jan. 2021
13.450.000 kr.
24.000.000 kr.
43.5 m²
551.724 kr.
21. jún. 2017
8.430.000 kr.
22.000.000 kr.
43.5 m²
505.747 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone