Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
sumarhús

Tröllahraun 10

805 Selfoss

54.900.000 kr.

633.218 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2296562

Fasteignamat

51.550.000 kr.

Brunabótamat

52.160.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2006
svg
86,7 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg sumarhúsaeign með gestahúsi, heitum potti og stórum palli í friðsælu umhverfi
Fallegur og einstaklega notalegur sumarbústaður á friðsælum stað í Grímsnesi þar sem náttúran fær að njóta sín. Hér er um að ræða bjarta og vel skipulagða eign með stórum palli, heitum potti og stórkostlegu útsýni yfir gróður og fjöll í kring.
  • Róleg og friðsæl staðsetning
  • Eignalóð
  • Fallegt útsýni til fjalla og yfir einstaka náttúru
  • Stór pallur sem umlykur húsið að hluta
  • Heitur pottur í skjólgóðu umhverfi
  • Gestahús með svefnherbergi og baðherbergi

Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða [email protected]
Andrea Ósk Harradóttir astmf. í  S: 785-6698 eða [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar skv HMS. er 86,70m2.


Skipting eignar:
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Í aukahúsi við aðalhúsið er eitt svefnherbergi og baðherbergi.

Nánari lýsing:
Forstofa
Flísalögð forstofa með góðu plássi.
Stofa
Björt og notaleg stofa með mikilli lofthæð og stórum gluggum sem hleypa inn mikilli náttúrulegri birtu. Fallegt útsýni yfir gróið umhverfi og til fjalla.
Borðstofa
Borðstofa er í opnu alrými með góðu plássi fyrir matborð og samveru fjölskyldu og vina.
Eldhús
Eldhús er opið inn í alrýmið með góðri vinnuaðstöðu og skápaplássi. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi
Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi II
Notalegt svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi
Flísalagt baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug.
Gestahús
Sérstakt gestahús á lóðinni sem inniheldur eitt svefnherbergi og baðherbergi. Tilvalið fyrir gesti eða aukið svefnpláss fyrir fjölskyldu og vini.
Pallur
Stór timburpallur umlykur húsið að hluta og býður upp á góða aðstöðu til útiveru.Heitur pottur á skjólgóðum palli þar sem hægt er að njóta kyrrðarinnar og fallegs útsýnis yfir náttúruna.
Lóð:
Falleg og gróin lóð í friðsælu umhverfi. Frá eigninni er víðsýnt yfir náttúruna og til fjalla sem setur einstakan svip á staðinn.

Árgjaldið er nú kr. 150 þús á ári innheimt á 5 gjalddögum. Tröllahrauni 10 er skuldlaust og hefur greitt alla gjalddaga þessa árs. Árgjald er ákveðið á aðalfundi hvert ár en hann er venjulega haldinn í september. Árgjald er til að standa straum af framkvæmdum á svæðinu, viðhaldi vega og flóttaleiða/gönguleiða, rekstri og viðhaldi aðgangshliðs, snjómokstri o.þ.h. Félagið safnar venjulega fyrir framkvæmdum áður en ráðist er í þær. Nú er verið að safna fyrir uppbyggingu og varanlegu slitlagi á götum er liggja út frá Bústjórabraut (stofnbraut svæðisins). 

Það er hitaveita.
 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík