Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1977
svg
191 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Fallegt og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með bílskúr og glæsilegri aðkomu við Hlíðarbyggð 3 í Garðabæ. Eignin skiptist í fimm svefnherbergi, stóra stofu og eldhús í opnu rými, garðskála, sjónvarpshol, tvö baðherbergi og þvottahús. Innbyggður bílskúr sem er geymsla í dag þar sem hluti bílskúrs er innréttaður sem eitt svefnherbergi og baðherbergi. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Húsinu hefur verið vel við haldið jafnt innan sem utan og nýlega var skipt um þakjárn og húsið málað að utan. Stétt og verönd mynstursteypt framan við húsið með snjóbræðslu að hluta, steypt innkeyrsla með snjóbræðslu og gróinn garður með timburveröndum og heitum potti suðvestan við húsið.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]
 
Eignin er skráð 191 fm hjá HMS, þar af er bílskúr skráður 67 fm. Sólskálinn er ekki inni í skráðum fm hjá HMS. 
 Nánari lýsing:
Forstofa með upphengdum skápum, parket á gólfi.
Fataherbergi (var áður gestasalerni).
Sjónvarpshol / opið miðrými, parket á gólfi og innangengt í sólskála og niður á neðri hæð.
Eldhús með nýlegri innréttingu og vönduðum tækjum, innbyggður kæliskápur og uppþvottavél sem fylgir og steinn á borðum.
Þvottahús innaf eldhúsi, flísalagt með góðri innréttingu.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými, parket á gólfi og innangengt í sólskála.
Sólskáli, flísar á gólfi, gólfhiti og útgengt á baklóð.
Hjónaherbergi með fataherbergi, parket á gólfi.
Barnaherbergi I með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi II með, parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt að mestu með hvítri innréttingu, upphengdu salerni, baðkari og sturtu.
 
Nánari lýsing neðri hæð:
Barnaherbergi III, mjög stórt og rúmgott, útgengt í garð.
Barnaherbergi IV, parket á gófli.
Baðherbergi, flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.
 
Bílskúr, skráður 67 fm en búið að innrétta hluta hans sem herbergi og baðherbergi.
 
Eigninni hefur verið vel við haldið að sögn seljenda en árið 2015 var baðherbergið endurbætt, neysluvatns- og frárennslislagnir endurnýjaðar framan við húsið og stéttin mynstursteypt með snjóbræðslu. Árið 2017 var settur gólfhiti í forstofu og hol og nýtt þakjárn sett á húsið. Árið 2018 var innrétting og öll tæki í eldhúsi endurnýjuð og miklar endurbætur unnar á neðri hæð hússins, sett nýtt teppi á stiga, gólfhiti settur á stóra herbergið niðri og baðherbergið endurbætt. Árið 2019 var innkeyrslan steypt með lokuðu snjóbræðslu kerfi, brunnar og lagnir út í götu endurnýjaðar. Sama ár var bætt við timburpall á baklóð og settur heitur pottur. Árið 2020 var skipt um glugga í herbergi niðri og sett ný rafmagnstafla með 3ja fasa rafmagni. Árið 2021 var skipt um glugga í þvottashúsi og svo innréttingu þar árið 2021. Árið 2022 var sett ný hurð í sólskála og skipt um þrjú gler og að lokum var húsið málað að utan sumarið 2023.
Niðurlag: Þetta er fallegt og vel viðhaldið raðhús á þessum eftirsótta stað í Garðabæ þar sem skólar, leikskóli, íþróttaaðstað og þjónusta er í göngufæri. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]

img
Hafdís Rafnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Hafdís Rafnsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. ágú. 2024
120.050.000 kr.
148.500.000 kr.
10101 m²
14.702 kr.
17. apr. 2012
37.150.000 kr.
37.000.000 kr.
191 m²
193.717 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Hafdís Rafnsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ