Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Tröllaborgir 17

112 Reykjavík

86.500.000 kr.

699.838 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2227836

Fasteignamat

77.800.000 kr.

Brunabótamat

65.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1996
svg
123,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 8. febrúar 2026 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Tröllaborgir 17, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. febrúar 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, lgfs, kynna: ***Fjögurra herbergja útsýnisíbúð með sérinngangi og bílskýli*** 
Á þessum eftirsótta stað er til sölu góð 123,4m2, fjögurra herbergja íbúð (302), með sérinngangi og þar með talið 21m2 opnu bílskýli með hleðslustöð. Sérinngangur, forstofa, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, stofa, borðstofa, svalir, eldhús, baðherbergi, sérþvottahús, geymsluloft, sérgeymsla í sameign og bílskýli. Næg bílastæði fyrir gesti. Um er að ræða afar góða 4ra herb. íbúð á þessum eftirsótta stað í Grafarvogi með útsýni. Stutt í alla þjónustu, gönguleiðir og fallega náttúru. 
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI, Í SÍMA 623-1717 - [email protected]

Nánari lýsing eignar.
Inngangur. Sérinngangur. 
Forstofa. Komið er inn í bjarta forstofu með ljósum flísum á gólfi parketi og rúmgóðum fataskápum.
Þaðan er gengið bæði inn á herbergjagang og inn í stofurými eignarinnar.
Eldhús. Eldhúsið er með hvítri viðarinnréttingu og miklu hirsluplássi. Bakaraofn og eldavélahellur, loftgleypir og tengi fyrir uppþvottavél. 
Eldhúskrókur. Bjartur og rúmgóður eldhúskrókur.  
Hjónaherbergi. Hjónaherbergið er rúmgott, með parketi og stórum fataskáp.
Barnaherbergi. Tvö góð barnaherbergi með parketi á gólfi. 
Stofa og borðstofa Opið og bjart alrými þar sem útgengt er á svalir með fallegu útsýni. 
Baðherbergi. Gráleitar flísar á gólfi og ljósar flísar á veggjum. Eikarinnrétting með góðu skápaplássi. Salerni, baðkar með sturtu. Glerveggur í sturtunni. 
Þvottahús. Sérþvottahús innan íbúðar. 
Geymslur. Góð 5,1m2 geymsla er í sameign. Auk hennar er stórt geymsluloft í íbúð. 
Í sameign hússins er hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði. Eigninni fylgir opið bílskýli, 21,4 m², búið rafmagni og tengdri hleðslustöð, köldu vatni og frárennsli.
Bókaðu skoðun hjá Svavari Friðrikssyni, löggiltum fasteignasala, í síma 623-1717 eða sendu tölvupóst á [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.
 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone