Opið hús: Grundarstígur 11, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 12. febrúar 2026 milli kl. 12:00 og kl. 13:00.
Lýsing
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]
Fasteignamat fyrir árið 2026 skv. HMS er 50.550.000kr.
Eignin Grundarstígur 11 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-6978, birt stærð 45.3 fm. Þar af er sérgeymsla eignar merkt 01 0005 skráð 3,7fm.
Einstaklega falleg íbúð á afar vinsælum stað í Þingholtunum með alla helstu verslun og þjónustu í stuttu göngufæri ásamt fjölbreyttri flóru kaffi- og veitingastaða, menningarhúsa og listasafna.
Framkvæmdir á húsi:
2020:
- Húsið allt múrviðgert að utan og steinað upp á nýtt.
- Gler og gluggar hússins endurnýaðir, nema í stigahúsi.
- Þakjárn, þakpappi, þakrennur og niðurföll endurnýjuð
- Skipt um útihurðir á þvottaherbergi og geymslugangi
Nánari lýsing:
Gangur: Tengir saman öll rými íbúðar.
Alrými: Einstaklega fallegt og bjart rými með samliggjandi eldhúsi og stofu. Hátt til lofts og fallegir gluggar.
Eldhús: Endurnýjað fyrir 4 árum með fallegri innréttingu með innbyggðum ískáp, uppþvottavél, blástursofni, spanhelluborði og eldhúsvaski. Opið og samliggjandi stofu.
Stofa: Rúmgóð, falleg og björt. Opin við eldhús.
Herbergi: Rúmgott. Nýtt í dag sem fundarherbergi.
Baðherbergi: Endurnýjað á smekklegan hátt fyrir um 4 árum. Sturtuklefi, upphengt salerni, baðinnrétting með neðri skúffum, vask og spegli fyrir ofan vask. Flísar á gólfi.
Í kjallara eru:
Sér geymsla: 3,7fm
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla. Þvotta- og þurrkherbergi með glugga. Stigahús er mjög snyrtilegt, linoleumdúklagt og nýlega málað.
Afar falleg eign á vinsælum stað í Þingholtunum í miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.