Opið hús: Kirkjustétt 4, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 7. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á annarri hæð með stórum svölum á eftirsóttum stað í Grafarholtinu.
Íbúðin er björt og rúmgóð með góðri lofthæð sem skapar opið og notalegt rými.
Byggt var ofan á húsið fyrir nokkrum árum og var þá á sama tíma skrifstofuhúsnæði breytt í íbúðir á snyrtilegan hátt.
Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi, rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús með eyju, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar.
Úr stofu er útgengt á svalir til norðvesturs með góðu útsýni.
Næg bílastæði eru við húsið og sameiginleg vagna- og hjólageymsla í húsinu.
Um er að ræða vel staðsetta og snyrtilega eign þar sem húsfélag heimilar dýrahald. Samkvæmt eiganda er húsið í góðu ástandi.
Nánari lýsing:
Forstofa með harðparketi og stórum fataskáp.
Geymsla er innan íbúðar og hægt að nota sem líka sem vinnuherbergi. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með "walk-in" sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og fallegri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél.
Eldhús er með hvítri háglansinnréttingu, góðu skápaplássi og eyju sem hægt er að sitja við. Innbyggð tæki og vönduð vinnuaðstaða.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með útgengi á svalir. Mikil lofthæð stækkar rýmið verulega.
Svefnherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Svalir eru stórar og snúa í norðvestur - góð kvöldsól og mikið útsýni af svölum.
Húsið er á þremur hæðum með 19 íbúðum í einu stiga- og lyftuhúsi.
Á jarðhæð er aðalinngangur byggingarinnar frá bílastæði að norðanverðu, tæknirými, hjóla- og vagnageymsla.
Í húsinu er lyfta. Á jarðhæð eru verslunar og þjónustuhúsnæði t.d. bakarí, heildverslun, hárgreiðslustofa og fleira.
Burðarkerfi byggingarinnar er staðsteypt tvær hæðir og 3. hæð byggð úr timbri.
Húsið er einangrað með steinull og klætt með álklæðningarkerfi sem veðurkápu.
Staðsetning:
Eignin er á vinsælum stað í Grafarholtinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í göngufæri eru leik- og grunnskólar, verslanir og almenningssamgöngur. Nánasta umhverfi býður upp á falleg útivistarsvæði, m.a. við Úlfarsfell, Elliðaárdal og Grafarholtsvöll.
Verslun og þjónusta er á fyrstu hæð í sama húsi, s.s. hárgreiðslustofa og bakarí.
Linkur á teikningar af Kirkjustétt 4 hér
Opnaðu söluyfirlit fyrir eignina hér
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - sími: 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.