Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Benedikt Ólafsson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Eggert Maríuson
Tinna Bergmann Halldórsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Lindasmári 37

201 Kópavogur

74.600.000 kr.

809.111 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2218822

Fasteignamat

70.800.000 kr.

Brunabótamat

45.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1995
svg
92,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:

Snyrtilega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð við Lindasmára 37, 201 Kópavogi. Íbúðin er í litlu og rólegu fjölbýlishúsi á eftirsóttum og skjólsælum stað í Smáranum. Samtals birt stærð séreignar er 92,2 fm skv. Þjóðskrá. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslanir og afþreyingu, þar á meðal Smáralind, Fífuna og íþróttasvæði Breiðabliks.
Nánar tiltekið eign merkt: Lindasmári 37, fastanúmer 221-8822, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Stærð íbúðar er 92,2 fm. Eigninni fylgir stór afgirtur sérafnotaflötur með skjólgóðum palli sem snýr í suður, nýtist afar vel til útiveru. Björt og vel skipulögð endaíbúð á jarðhæð með tveimur svefnherbergjum Smekklega endurnýjað baðherbergi með sturtu og glerþili. Góð staðsetning í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Smáranum.
Ásett verð: 74.600.000  kr.

**Smelltu hér til að skoða myndband um eignina**

Sölupunktar eignar:
  • Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð.
  • Stór afgirtur sérafnotaflötur með skjólgóðum palli.
  • snyrtilegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góða innréttingu og sturtu með glerþili.
  • Góð staðsetning í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Smáranum.
  • Eign á vinsælum stað sem vert er að skoða.

**Smelltu hér til að sækja söluyfirlit**

Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, stofu og borðstofu, eldhús með borðkrók, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og afgirtan sérafnotaflöt.

Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Flísalögð forstofa með fataskáp og góðu aðkomurými.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum og góðu rými fyrir bæði setustofu og borðstofu, parket á gólfi. Útgengt er á skjólgóðan pall og stórann afgirtan sérafnotaflöt.
Eldhús: Snyrtilegt eldhús með góðri innréttingu, flísum á milli skápa og góðu vinnuplássi. Borðkrókur er við glugga og parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Gott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Smekklegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri vaskinnréttingu, handklæðaofni og rúmgóðri sturtu með glerþili.
Þvottahús/geymsla: Rúmgott og mjög nýtilegt rými inn af eldhúsi með flísum á gólfi, góðri vinnuaðstöðu, innréttingum/skápum og plássi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Gott geymslupláss er í rýminu og þvottaaðstaðan er snyrtileg og vel skipulögð.
Útisvæði: Eigninni fylgir stór og afgirtur sérafnotaflötur með skjólgóðum palli sem snýr í há-suður og góðu plássi fyrir útihúsgögn, grill og almenna útiveru.
Sameign: Sameign hússins er snyrtileg og húsið stendur á vinsælum stað í grónu hverfi.

Framkvæmdir á húsinu á síðustu árum:
Árið 2024 fóru fram múrviðgerðir á öllu húsinu og húsið var málað að utan. Árið 2024 var skipt um hluta af gluggum á suðurhlið hússins, þar á meðal glugga og gler í eldhúsi. Árið 2025 var skipt um þak, þakglugga og þakrennur.

Nánari upplýsingar veitir:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661 7788 eða á netfanginu [email protected].
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Benedikt Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
STOFN Fasteignasala ehf.
Lyngási 11, 210 Garðabæ
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ
img

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. mar. 2014
23.150.000 kr.
28.650.000 kr.
92.2 m²
310.738 kr.
24. feb. 2010
20.500.000 kr.
22.700.000 kr.
92.2 m²
246.204 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ